Heim Kjólar Um okkur Hafa samband Mátanir
Search Heim
Allir kjólar Mini dresses Maxi dresses Sets
Um okkur Hafa samband Mátanir

Skilmálar Elegance

Síðast uppfært:

Almennir skilmálar

Þessir skilmálar gilda um alla þjónustu og viðskipti við Elegance. Með því að bóka eða leigja flík hjá Elegance staðfestir viðskiptavinur að hann hafi kynnt sér skilmálana og samþykki þá.

Ef kjóllinn skemmist, eyðileggst eða verður fyrir varanlegu tjóni á því tímabili, er leigutaka skylt að greiða fullt söluverð kjólsins.

Elegance áskilur sér rétt til að uppfæra eða breyta skilmálum þessum hvenær sem er án fyrirvara.

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög og skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Í sumum tilvikum geta flíkur verið í eigu þriðja aðila en leigðar í gegnum Elegance. Í slíkum tilvikum gilda þessir skilmálar engu að síður um viðskiptin.

Tryggingargjald

Við bókun er hægt að velja valfrjálst tryggingagjald að upphæð 1.490kr.Tryggingagjaldið getur staðið undir kostnaði vegna:*blettahreinsunar*minniháttar viðgerðaTryggingagjaldið er ekki endurgreitt.Það nær ekki til varanlegra skemmda, týndrar flíkur eða stulds.


Leigutími

Leigutími hefst og lýkur á þeim dagsetningum og tíma sem valdir eru við bókun. Þarf að greiða fyrir hvern dag sem dregst (greiða álag)
Flík skal:
*sótt eða afhent á umsömdum tíma
*skilað á umsömdum tíma


Ábyrgð á flík

Við afhendingu færist ábyrgð á flíkinni yfir til viðskiptavinar og gildir þar til henni hefur verið skilað aftur samkvæmt samkomulagi.
Ef tjón verður á flík skal tilkynna það þegar flíkinni er skilað eða eins fljótt og auðið er.
Viðskiptavinum er óheimilt að framleigja eða selja flíkur Elegance

Viðskiptavinur ber ábyrgð á flíkinni á meðan hún er í hans vörslu, þar á meðal ef:
*flíkin skemmist
*flíkin týnist
* flíkinu er stolið

Verð og breytingar

Ef flík verður fyrir alvarlegu eða varanlegu tjóni getur Elegance innheimt fullt verðmæti flíkurinnar.Í öðrum tilvikum getur Elegance innheimt kostnað vegna:
*hreinsunar
*viðgerða

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um villur.

Elegance áskilur sér rétt til að:

*breyta verðum
*hætta að bjóða upp á vörur
*hætta við bókanir vegna rangra upplýsinga


Ilmvötn og lyktarvörur

Ekki má sprauta ilmvatni, hárspreyi, líkamsúða eða öðrum lyktarvörum beint á flíkur Elegance.

Slíkar vörur geta valdið:

*blettum
*varanlegri lykt í efni flíkurinnar

Viðskiptavinir mega nota slíkar vörur á sig sjálfa en skulu gæta þess að þær komi ekki í beina snertingu við flíkina.

Ef flík skemmist vegna þessa getur Elegance innheimt kostnað vegna hreinsunar eða eftir atvikum fullt verðmæti flíkurinnar.

Yfirlit
  • Heim
  • Kjólar
  • Um okkur
  • Hafa samband
UPPLÝSINGAR
  • Hafa samband
  • Skilmálar
  • Mátanir
Skráðu þig á póstlistann

Með því að skrá þig samþykkir þú að fá tölvupóst frá okkur. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.


© 2026 Elegance. Allur réttur áskilin.
Vefsíða unnin af nomo
  • Choosing a selection results in a full page refresh.
  • Opens in a new window.